





Tannhvíttun Onlysmile
Skínandi hvítar tennur auka sjálfstraust og fólk sem brosir oft og mikið er talið vera opnara og með hlýrri persónuleika og gengur jafnvel betur í lífinu. Fjölmargir láta hvítta tennur sínar á hverju ári.
En hvernig virka þau efni, sem við notum til að hvítta tennur?
Okkar vörur eru hannaðar af margverðlaunuðum tannlækni/uppfinningamanni, sem er frumkvöðull í hönnun á vörum, sem fjarlægja bletti af tönnum, þar sem nýjasta tækni er notuð ásamt listsköpun.
Í 23 ár hefur hann hannað tannhvíttunarvörur fyrir stórfyrirtæki eins og Colgate-Palmolive, Procter & Gamble og nú einnig fyrir það fyrirtæki, sem sér okkur fyrir þjálfun og vörum - LoveLite by Amabelle.
Tilgangurinn með þeim fjölmörgu tannhvíttunarhlaupum (e. gel ), sem við bjóðum upp á er að brjóta niður þau efni, sem mynda bletti á tönnunum t.d. eftir kaffi- eða rauðvínsdrykkju, bera síðan hlaup á tennurnar, sem ásamt LED ljósi, sem við notum dregur fram það fallegasta í tönnunum og gerir þær virkilega hvítari.
LED ljósið er þannig notað til að virkja tannhvíttunarhlaupið enn frekar. Sannanir hafa sýnt að tannhvíttun á viðurkenndri stofu ásamt vörum ber mestan árangur.